Mega sænga með látnum konum

Átök í Egyptalandi.
Átök í Egyptalandi. STRINGER/EGYPT

Á egypska þinginu liggur nú fyrir frumvarp sem veitir eiginmönnum lagalegan rétt til þess að eiga kynmök við látnar eiginkonur sínar í allt að sex klukkutíma frá andláti þeirra. Ástæða fyrirhugaðrar lagabreytingar er einungis útskýrð sem svo að hún sé trúarlegs eðlis.

Hin umdeildu lög eru afsprengi umdeilds máls sem fram kom í Egyptalandi árið 2011 þegar klerkur að nafni Zamzami Abdul Bari sagði að menn ættu að hafa rétt á því að sænga með konum sínum eftir dauða þeirra. Eins ættu konur að hafa sama rétt til þess að sænga hjá eiginmönnum sínum. 

Svo virðist sem aðilar á egypska þinginu hafi tekið málið upp á sína arma og er lagabreytingin fyrirhuguð á næstu mánuðum. Jafnframt liggja fyrir þinginu frumvörp um að lækka giftingaraldur kvenna niður í 14 ár og afnema réttindi þeirra til jafnrar menntunar og réttinda á vinnumarkaði.

Málið er runnið undan rifjum flokks íslamista sem náði nýlega undirtökum á egypska þinginu. Málið hefur vakið hörð mótmæli í Egyptalandi. 

Þessi frétt er væntanlega gabb líkt og sjá má á þessari frétt mbl.is



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert