Óku fram af hraðbraut og létu lífið

Frá New York. Úr myndasafni. stækka

Frá New York. Úr myndasafni. Reuters

Fjórir fullorðnir og þrjú börn létu lífið eftir að bílstjóri bifreiðar missti stjórn á henni í New York í dag og hún steyptist fram af upphækkaðri hraðbraut og féll niður í það minnsta 15 metra að sögn lögreglu.

Ekki liggur fyrir hvað varð þess valdandi að bílstjórinn missti stjórn á bifreiðinni samkvæmt fréttavef CBS-sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum en bifreiðin kom niður á skógivöxnu svæði í dýragarðinum í Bronx og stóð upp á endann þegar komið var að henni. Allir þeir sem voru í bifreiðinni létu lífið.

Fram kemur í fréttinni að hinir látnu hefðu verið 84 ára gamall karlmaður, þrjár konur á aldrinum 80 ára, 45 ára og 30 ára og þrjár ungar stúlkur á aldrinum 12, 10 og 7 ára. Engum varð hins vegar meint af í dýragarðinum, hvorki starfsmeönnum, gestum né dýrum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Til leigu sérstæður íbúðarbílskúr
Til leigu frá 1-2.júlí. 2013 góður sérstæður 56 fm. bílskúr innréttaður sem stúd...
Peugeot 206
Fallegur Peugeot 206, árg. 2007 til sölu. Silfurgrár, ekinn 87þús. km. Ásett...
TIL SÖLU LÍTIÐ NOTAÐ ROCKWOOD
Til sölu lítið notað Rockwood Freedom Offroad 191XR-fellih...
Klár í ferðalagið
FORD LMC dísel árg. 5/2009 ek. 20 þ. km. 6 farþ., reiðhjólagrind, markisa o.fl. ...
 
13059 - strætó

Útboð Reykja vík ur borg Inn kaupade...
Starfsmaður óskast í 50% starf
Skrifstofustörf
Dýraverndarsamband Íslands leitar að st...
Special sykepleier - operasjon - skurðhjúkrunarfræðingar
Heilbrigðisþjónusta
Helse Møre og Romsdal HF er eit helsefør...
Organisti / kórstjóri
Listir
Organisti og kórstjóri Laus er s...