Rúmlega fertugur danskur karlmaður fannst látinn á Amadores-strönd á Gran Canaria, einni af Kanaríeyjunum, í dag. Maðurinn hafði fallið ofan af kletti, en ekki liggur fyrir hvort um slys, sjálfsmorð eða morð var að ræða.
Annars Dana, rúmlega fimmtugs karlmanns, er nú ákaft leitað á eynni. Hjól hans og bakpoki fundust á suðurhluta eyjarinnar, en ekkert hefur til hans spurst um hríð.
Samkvæmt frétt Jyllands-Posten í dag er ekki talið að málin tvö tengist.