Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

stækka

Reuters

Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters-fréttaveitunnar í dag og er þar vitnað í þrjá ónafngreinda embættismenn sambandsins.

Fram kemur í fréttinni að samþykkt hafi verið á símafundi sérfræðingateymis sem starfi fyrir fjármálaráðherra evruríkjanna að leggja þessar ráðleggingar fram en áður hafði seðlabanki Þýskalands lýst þeirri skoðun sinni að það yrði þolraun ef Grikkir yfirgæfu evrusvæðið en það væri viðráðanlegt.

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa undanfarið ítrekað lýst því yfir að allt verði gert til þess að tryggja að Grikkland verði áfram á evrusvæðinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Til sölu kerra, nýsmíði
750 kg. kerra, 250X125 cm. galvanhúðuð, klædd með áli, riffluð álbretti og olíus...
Reiðhjól
Til sölu reiðhjól. Verð 3000, s. 6633899 ...
Ægisvagn, Holyday Camp árg. 2007
Vel með farinn og lítið notaður Ægis tjaldvagn árg. 2007 til sölu. Sérhannaður f...
Einyrki-LaunaUppgjör.Launaseðlar í Excel
Töflukerfi í Excel fyrir LaunaUppgjör,Launaseðla, Skilagr RSK og Lífeyrissj. Upp...
 
Varmadælur - skaftárhreppur

Tilboð óskast í varmadælur fyrir Skaf...
Flokksstjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Bláskógabyggð Vinnuskóli Bláskógabyggð...
Kennarar - lausar stöður
Grunn-/framhaldsskóla
Þingeyjarskóli Þingeyjarskóli er samr...
Útboð stu-01 - reykjavík

Útboð STU-01 Tengivirki StuðlumBygg...