Þeir sem ekki reykja fá meira frí

Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga.

Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga. Heilbrigðisráðherra Noregs, Anne-Grete Strøm-Erichsen, segist styðja tiltækið.

„Ráðuneytið styður allar aðgerðir sem stuðla að reyklausum vinnustöðum. Við leggjum áherslu á að vinnuveitendur eru í fullum rétti til að banna notkun tóbaks á vinnutíma,“ segir Strøm-Erichsen í samtali við vefsíðu norska dagblaðsins Aftenposten.

Starfsmannastjóri fyrirtækisins Infotjenester segir að reykingapásur séu tímafrekar, ekki síst eftir að öll notkun tóbaks var bönnuð innandyra á allflestum vinnustöðum. Þar fá reyklausir starfsmenn tvo aukafrídaga.

Fyrirtækið Grieg Group í Bergen veitir þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja einn frídag umfram þá sem reykja. Talsmaður fyrirtækisins segir það til að vega upp á móti því að þeir sem reykja fari miklu oftar í pásur en þeir reyklausu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Toyota Avensis Wagon 1999
Árgerð 1999. Ekinn 142 þ. km. Nýskráður 6 / 1999. Næsta skoðun 2013. Verð 650.00...
SUBARU IMPREZA ÁRG. 2005
SUBARU IMPREZA WAGON GX ÁRGERÐ 2/2005. SKOÐAÐUR 2013 EK. 184 Þ. KM. SJÁLFSKI...
LifeWave tæknin hjálpar mörgum með gigt. !!!
LifeWave tæknin hefur hjálpað mörgum með gigt. Það nýjasta er að sjúkrahús í ...
Til sölu fallegt hjónarúm frá RB rúm
Til sölu fallegt hjónarúm 180 x 200 með bólstruðum gafli, selst á 40.000 þúsund ...
 
Organisti / kórstjóri
Listir
Organisti/kórstjóri Norðfjarðarkirkja, N...
13059 - strætó

Útboð Reykja vík ur borg Inn kaupade...
Fráveitulagnir í árgili

A B Útboð 1 1 Orkuveita Húsavík...
Styrkur´- minningarsjóður karls j sighvatssonar

Stjórn Minningarsjóðs Karls J. Sighvatss...