Handtóku „kanadíska brjálæðinginn“

Luka Rocco Magnotta. stækka

Luka Rocco Magnotta. AFP

 Lögreglan í Berlín hefur handtekið mann sem talinn er vera morðingi sem kallaður er „kanadíski brjálæðingurinn“ í fjölmiðlum. Maðurinn, Luka Rocco Magnotta, hefur verið eftirlýstur fyrir að drepa kærasta sinn og brytjað hann niður. Á hann að hafa kvikmyndað athæfið að auki.

„Ég get staðfest að maðurinn sem við handtókum er hinn eftirlýsti Magnotta,“ segir talsmaður lögreglunnar í Berlín.

Fyrr í dag komst franska lögreglan á snoðir um að hugsanlega hefði Magnotta farið frá París, þar sem hann er talinn hafa leynst frá því á föstudag, með rútu eða lest. Hafði starfsmaður á umferðarmiðstöð borið kennsl á manninn.

Luka Rocco Magnotta.

Luka Rocco Magnotta. AFP

Magnotta hefur verið kallaður „kanadíski brjálæðingurinn“ (e. Canadian Psycho) vegna myndbands sem talið er sýna hann stinga annan mann með ísnál og skera lík hans svo niður. Undir myndbandinu er leikin tónlist úr kvikmyndinni American Psycho.

Interpol hóf í síðustu viku að leita Magnotta en hann gengur einnig undir nöfnunum Eric Clinton Newman og Vladimir Romanov. Hann er m.a. þekktur fyrir að hafa leikið í klámmyndum.

Meint fórnarlamb Magnotta er Lin Jun en þeir áttu í ástarsambandi.

Magnotta hefur verið eftirlýstur af Interpol.

Magnotta hefur verið eftirlýstur af Interpol. AFP

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Til sölu 5stk.19565R15 sumardekk
Hef til sölu 3stk. Bridgestone Blizzak Norden 195/65R15 heilsársdekk, tvö hálfsl...
Til sölu VW Polo
Polo Comfortline árg 07. Sjálfsk. Ek 83þús km. Einn eigandi. Vetrar- og sumardek...
GISTING
Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einb...
Cheapest car rental in Reykjavik, Iceland
We are the cheapest Iceland car rental offering good solid cars at the lowest po...
 
Tilboð í ráðgjafavinnu
Tilboð - útboð
Tilboð í ráðgjafavinnu S30 fasteignaf...
15352 flugvallarslökkvibifreiðar
Tilboð - útboð
Útboð nr. 15352 Flugvall...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Rafmagns- verk- eða tæknifræðingur
Tölvur/upplýsingatækni
RAFMAGNS- VERK- EÐA TÆKNIFRÆÐINGUR V...