ESB-ráðherrar í viðbragðsstöðu

Grikkir ganga að kjörborðinu þann 17. júní og kjósa til þings, en þingkosningar voru í ... stækka

Grikkir ganga að kjörborðinu þann 17. júní og kjósa til þings, en þingkosningar voru í landinu 6. maí síðastliðinn. Þá tókst ekki að mynda stjórn. AFP

Fjármálaráðherrar Evrulandanna verða í viðbragðsstöðu, ef kalla þarf til fundar með skömmum fyrirvara í kjölfar þingkosninganna í Grikklandi sem verða á sunnudaginn. 

Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að þeir geti rætt saman og stillt saman strengi sína og komið þannig í veg fyrir að þeir sendi frá sér mismunandi skilaboð, eins og áður hefur gerst varðandi málefni Grikklands.

Líklegt er talið að vinstriflokkurinn Syriza verði sigurvegari kosninganna og hefur Alexis Tsipras, leiðtogi flokksins, lýst því yfir að hann muni gefa sér tíu daga til að semja á ný við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið, sem hann segir að séu að ganga af fjárhag Grikklands dauðum.

Í viðtali við gríska ríkissjónvarpið í gær sagði Tsipras að hann vildi endurskoða og endurvinna samkomulag Grikkja við AGS og ESB.

Þetta verður í annað skiptið á skömmum tíma sem Grikkir ganga að kjörborðinu og kjósa til þings, en þingkosningar voru í landinu 6. maí síðastliðinn. Stjórnarmyndunarviðræður báru engan árangur og því var ákveðið að kjósa að nýju.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
LINCOLN NAVIGATOR 4/2005
Lincoln Navigator 4/2005 ekinn 110 þ. km. Flottur 7 manna lúxus b...
Bókaðu rástíma í USA & Canada
Ertu að fara til Bandaríkjanna eða Canada og vilt spila golf ? Erum með yfir 600...
ÚTSALA-Swarovski skartgrip Augnakonfekt
Glæsilegar kristalsljósakrónur, veggljós, glös og postulín. Swarovski skartg...
Vantar leiguhúsnæði í vetur til langstíma
2 bræður að norðan n.t. frá Laugum í Reykjadal vantar húsnæði á höfuðborgarsvæði...
 
Organisti / kórstjóri
Listir
Organisti/kórstjóri Norðfjarðarkirkja, N...
Samkoman fellur inní sumarmót - kristniboðssambandsins
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensáskirkju Sunnu...
Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi

Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagss...
Yfirlæknir bráðageðdeild
Heilbrigðisþjónusta
BRÁÐAGEÐDEILD Yfirlæknir Starf yf...