Misþyrmdi konu sinni skelfilega

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Karlmaður í Vestur-Virginíu-ríki Bandaríkjanna hefur verið handtekinn fyrir að hafa hlekkjað eiginkonu sína við hjónarúmið og fyrir að hafa misþyrmt henni í hartnær 10 ár.

Lögreglan í Jackson-sýslu ákærði Peter Lizon, sem er 37 ára, eftir að kona hans, Stephanie, leitaði á kvennaathvarf með ör á úlnliðum og ökklum. Mun Lizon m.a. hafa fótbrotið konu sína með verkfærum kallað hana þræl sinn, og neytt hana til þess að krjúpa í hvert sinn sem hann kom inn í sama herbergi og hún. Þá var Stephanie með brunasár út um allan líkamann. 

Samkvæmt vitnum á Lizon einnig að hafa kýlt konu sína í magann meðan hún var þunguð, og þannig valdið fósturláti. Þá þurfti hún að fæða annað barn á meðan hún var hlekkjuð við hjónarúm þeirra. Tony Boggs, lögreglufulltrúi í Jackson-sýslu, sagði að málið væri tífalt verra en venjuleg dæmi um heimilisofbeldi, og að það væri ótrúlegt hvað sumt fólk gæti gert við aðrar manneskjur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert