Táningur í fangelsi fyrir morð

Ungmenni á götum Jerúsalem.
Ungmenni á götum Jerúsalem. AFP

Sextán ára ísraelskur piltur hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að myrða 24 ára gamlan Palestínumann í febrúar á síðasta ári.

Í febrúar árið 2011 var Hossam al-Ruweidi myrtur í borginni Jerúsalem en fjórir ungir gyðingar réðust á hann. Í gær var einn árásarmannanna, sem var sextán ára er árásin átti sér stað, dæmdur fyrir manndráp við unglingadómsstól í Jerúsalem.

Við réttarhöldin kom fram að félagarnir fjórir hefðu verið að drekka áfengi langt fram á nótt. Ruweidi varð á vegi þeirra en hann var þá að tala við félaga sinn á arabísku. Einn fjórmenninganna hóf að hrópa að þeim ókvæðisorð og berja á þeim báðum. Félagar hans tóku svo allir þátt í árásinni.

Unglingurinn sem nú hefur verið dæmdur skar Ruweidi í andlitið. Allir fjórir réðust þeir á mennina tvo. Ruweidi missti að lokum meðvitund og lést á sjúkrahúsi skömmu síðar en dauða hans má rekja til skurðsáranna á andlitinu.

Réttarhöld standa enn yfir tveimur árásarmönnum til viðbótar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert