Ikea með bjór til sölu

Merki Ikea.
Merki Ikea. AFP/ PHILIPPE HUGUEN

Viðskiptavinir Ikea í Bretlandi geta nú keypt sér öl í matvöruverslun húsgagnarisans. Ekki þarf sexkant til þess að setja hann saman eða opna hann.

Samkvæmt frétt thelocal.se um málið er stefnt að því að bjórinn verði settur í dreifingu um allan heim í júlí og ágúst. 

Ivana Flygar, talsmaður Ikea í Svíþjóð sagði að verslunin vildi að þær vörur sem matvöruverslun Ikea byði upp á endurspeglaði sænska matarmenningu. Ikea fór að selja matvöru árið 2006 og hefur þróað vöruframboð sitt æ síðan, þó þeir séu þekktastir fyrir sænsku kjötbollurnar sem eru þar á boðstólum.

Hún tók fram að Ikea vildi selja bjórinn alls staðar þar sem Ikea verslanir væru í heiminum. Ljóst er þó að sænskir viðskiptavinir húsgagnarisans munu verða fyrir vonbrigðum, þar sem áfengislöggjöfin þar í landi leyfir ekki að bjórinn verði seldur í verslunum Ikea þar. Verið væri þó að athuga þann möguleika að bjórinn verði seldur á veitingastöðum þeim sem fylgja verslununum.

Bjórinn er til bæði ljós og dökkur, og heitir „Ikea Öl Ljus lager“ og „Ikea Öl Mörk Lager.“ Þeir eru báðir 4,7% að styrkleika.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert