Obama réðist að Romney í dag

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, var harðorður í garð keppinauta sinna, Mitt Romney og Repúblikanaflokksins þegar hann sakaði Romney um að vilja meðal annars afnema skattaafslætti fyrir vindorkugeirann og með því að setja 37.000 störf í hættu.

Kosningar um forseta Bandaríkjanna verða í haust og kjörtímabili Obama lýkur 20. janúar 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert