Sýruárás á unga konu í Þýskalandi

Þýska lögreglan að störfum
Þýska lögreglan að störfum AFP

Tvítug kona af tyrkneskum uppruna varð fyrir sýruárás í Þýskalandi í gær. Þýska lögreglan hefur handtekið tvo karlmenn sem grunaðir eru um árásina. Konan hlaut alvarleg brunasár undan sýrunni.

Mennirnir réðust á konuna á dyraþrepinu við heimili hennar, í bænum Hilden í Vestur-Þýskalandi, þegar hún opnaði útidyrnar og skvettu yfir hana sýru úr niðursuðudós. Konan fann samstundis fyrir miklum bruna í andliti og hafði samband við neyðarlínu. Hún var flutt samstundis á sjúkrahús. Amma hennar meiddist einnig lítillega í árásinni.

Annar hinna grunuðu, 22 ára gamall karlmaður af tyrkneskum uppruna, var handtekinn í gær og hefur lögregla farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Við yfirheyrslu sagðist hann hafa beðið kunningja sinn um að framkvæma árásina, samkvæmt því sem segir í yfirlýsingu frá lögreglunni og saksóknara í Dusseldorf. Í dag gaf hinn maðurinn sig fram við lögreglu, en sá er 18 ára gamall piltur.

Að sögn lögreglu notuðust mennirnir við sýru sem þeir keyptu í apóteki. Konan hafði þrisvar sinnum tilkynnt lögreglu um hótanir mannanna í hennar garð og kært þá fyrir að beita hana ofbeldi. Að sögn þýsku lögreglunnar höfðu ungu mennirnir fengið fyrirskipun um að halda sig frá stúlkunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert