Yfir 250 slasaðir eftir loftsteinaregn

Frá Chelyabinsk í morgun
Frá Chelyabinsk í morgun AFP

Yfir 250 slösuðust eftir loftsteinaregn í Rússlandi í nótt. Víða brotnuðu rúður í húsum og bifreiðum og slösuðust flestir þegar þeir fengu glerbrot yfir sig.

Loftsteinadrífan sást víða en hún féll á jörð í Úral-héraði. Að sögn íbúa í Chelyabinsk hristist jörðin og skalf er steinarnir skullu á jörðinni og viðvörunarkerfi bifreiða fóru af stað.

Reuters hefur eftir íbúa í Chelyabinsk að hávær sprenging hafi heyrst snemma í morgun og nítján hæða hús hafi gengið í bylgjum þegar loftsteinarnir lentu á jörðinni.

Fylgst með loftsteinadrífunni
Fylgst með loftsteinadrífunni AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert