Páfinn kvaddi í hvítri þyrlu

Benedikt XVI páfi kom í síðasta sinn út á svalirnar við Péturstorgið í gær og ávarpaði viðstadda og kvaddi. Hann var svo sóttur á hvítri þyrlu sem flaug með hann út í nóttina.

Benedikt er hættur sem páfi. Hann sagði af sér en það hefur ekki gerst í 700 ár innan kaþólsku kirkjunnar.

Nú munu kardínálarnir koma saman og finna arftaka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert