Myndaði heimilisofbeldi án afskipta
Mögnuð myndaröð ljósmyndarans bandaríska Söru Naomi Lewkowicz af heimilisofbeldi hefur vakið mikla athygli. Lewkowic fylgdist sem fluga á vegg með sambandi pars og myndaði það í blíðu og stríðu, m.a. er maðurinn beitti konuna ofbeldi. Hin áhrifamikla myndaröð var birt á vef vikuritsins Time nýverið.
Lewkowic kynntist Shane og Maggie er hún var að vinna að myndagrein um fyrrverandi fanga á síðasta ári. Hún segir að allt í einu hafi heimilisofbeldi blasað við sér.
Lewkowic var stödd á Millersport-kornhátíðinni í Ohio í nóvember. „Ég kom um leið auga á mann þakinn húðflúri, meðal annars var eitt risastórt á hálsi hans þar sem stóð „Maggie Mae“. Hann hélt á fallegri lítilli stúlku með ljósar krullur. Blíð framkoma hans var ekki í samræmi við ögrandi húðflúrin og ég fór til þeirra og spurði hvort ég mætti taka mynd af þeim.“
Svo fór að Lewkowic eyddi allri hátíðinni með parinu, þeim Shane 31 árs og kærustu hans Maggie, 19 ára. Börn Maggiear, Kayden fjögurra ára og Memphis tæplega tveggja ára, voru ekki börn Shanes.
Shane og Maggie voru aðeins búin að vera saman í fáar vikur. Shane sagði Lewkowic frá fíkn sinni og að hann hefði eytt stórum hluta ævinnar í fangelsi. Maggie hafði misst móður sína mjög ung og svo alið börnin sín upp ein því faðir þeirra var í hernum og í Afganistan.
Lewkowic bað um að fá að fylgjast áfram með þeim og þau samþykktu það. Hugmyndin var að segja í ljósmyndum sögu fyrrverandi fanga að fóta sig á ný í lífinu. „Sú saga breyttist algjörlega á einni nóttu eftir ferð á bar.“
Maggie hafði reiðst er önnur kona daðraði við Shane á barnum. Er heim var komið rifust þau. „Áður en leið á löngu höfðu öskrin magnast í líkamlegt ofbeldi,“ segir Lewkowic.
Shane réðst á Maggie, kastaði henni til, ýtti henni upp að vegg og tók hana hálstaki. Dóttirin, Memphis, horfði á.
Eftir að hafa fengið staðfestingu á því að nágranni hafði hringt á lögregluna hélt Lewkowic áfram að mynda. „Ef Maggie gat ekki farið, þá gat ég það ekki heldur.“
Lewkowic hélt áfram að mynda eftir að lögreglan kom á vettvang.
„Þetta atvik vakti margar siðferðislegar spurningar. Ég hef verið skömmuð af mörgum nafnlausum einstaklingum sem segja að ég hefði átt að blanda mér í átökin milli þeirra,“ skrifar Lewkowic. Hún segir hins vegar sérfræðinga, m.a. lögreglumenn, segja að það að reyna að ganga á milli þeirra hefði líklega aðeins gert illt verra.
Lewkowic ætlar áfram að fylgjast með Maggie og hefur nú hafið samstarf við ljósmyndarann Donnu Ferato sem hóf að skrá heimilisofbeldi fyrir þremur áratugum.
Maggie býr nú í Alaska með barnsföður sínum. Markmið Lewkowic er að skrá langtímaáhrif ofbeldis á líf Maggiar og sambönd hennar við annað fólk.
Sjá umfjöllunina í heild hér.




