Erlent
| mbl
| 8.3.2013
| 13:51
200 manns veiktust á matarhátíð
Frystu rannsóknir sýna að salmonellusmit olli slæmri magapest meðal fjölda veislugesta á götuhátíð í Newcastle. Um 200 manns hafa fundið fyrir einkennum og margir fengið niðurgang. Um asíska matarhátíð var að ræða.
Um 12 þúsund manns sóttu hátíðina en hún fór fram dagana 28. febrúar til 2. mars.
Skipuleggjendur hátíðarinnar segja við Sky-sjónvarpsstöðina að þeir séu miður sín og í miklu uppnámi að heyra af matareitruninni.
Grænmetisæturnar Prem Kaur og 15 ára gömul dóttir hennar Devindar urðu alvarlega veikar daginn eftir að þær komu heim af hátíðinni. Þær segjast hafa þurft að hlaupa á klósettið og verið mjög óglatt. Hringja þurfti á sjúkrabíl fyrir dótturina sem veiktist mjög heiftarlega.
Margir hafa verið veikir dögum saman.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






