Hlægilegt að karlaklúbbur velji páfa

Kardínálarnir undirbúa sig nú fyrir að velja nýja páfa við mjög leynilega athöfn. Eina konan sem hefur fengið að koma nálægt undirbúningnum er líklega sú sem saumaði borðdúkana.

Þessi mikilvægasta ákvörðun kaþólsku kirkjunnar er því tekin af körlum og aðeins karlar koma til greina í embættið. Hins vegar er helmingur safnaðarins konur.

„Að hlusta ekki á skoðanir heimsins á málinu er eins og löðrungur í andlitið,“ segir  Janice Sevre-Duszynska, sem var formlega tekin út af sakramenti Vatíkansins eftir að hún var óformlega vígð sem prestur í Bandaríkjunum.

Hún sagði við AFP-fréttastofuna í gær að það að karlar einir ættu að velja nýja páfa sem ætti að drottna yfir bæði konum og körlum væri hlægilegt.

Sevre-Duszynska var í gær handtekin fyrir að mótmæla í Vatíkaninu í kirkjulegum klæðum. Lögreglan sagðist ætla að kanna hvort hún hefði „rétt á að bera þessi klæði“.

Mótmælendur sem studdu Sevre-Duszynsku vilja að næsti páfi taki málefni kvenna innan kirkjunnar föstum tökum. Margir vilja þeir að hann heimili konum að verða prestar.

Sérfræðingar í málefnum Páfagarðs segja að af þeim 115 kardínálum sem páfinn verður valinn úr sé enginn líklegur til að gera breytingar í þá átt að veita konum meiri völd innan kirkjunnar.

Samkvæmt lögum kaþólsku kirkjunnar geta konur ekki orðið prestar af þeirri ástæðu að postular Jesús Krists hafi allir verið karlar.

Þær geta heldur ekki orðið páfar. Þjóðsagan segir að það hafi þó einu sinni gerst á miðöldum. Sú þóttist vera karl en upp um komst er hún fæddi barn.

Er svindlið var afhjúpað segir sagan að kardínálarnir hafi orðið brjálaðir og bundið hana við hest og hún dregin á eftir honum um götur Rómar þar til hún lést.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Til sölu ný. Flutninga / Farangurskerra
Vönduð, sinkhúðuð og álklædd. 2 hurðir m tjökkum opnat upp. Ber 750.kg. Kassi, L...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
Sláttuvél
Sláttuvél til sölu, upplýsingar í síma 893-5005...
DODGE NEON SRT-4 árg 2005
Til Sölu Dodge Neon SRT-4Turbo Intercooler Árg 2005 ekin 61 Þ Km gottstaðgreiðsl...
 
Laus störf
Grunn-/framhaldsskóla
Laus störf við Grunnsk...
Deildarstjóri óskast
Sérfræðistörf
Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagss...
Organisti/kórstjóri
Listir
Organisti/kórstjóri Nor...
Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi

Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagss...