Um 50 þúsund tonn af nautakjöti líklega hrossakjöt

Hrossakjötshneykslið ætlar engan endi að taka.
Hrossakjötshneykslið ætlar engan endi að taka. AFP

Matvælaeftirlitið í Hollandi bað í dag mörg hundruð fyrirtæki víðs vegar um Evrópu sem keypt hafa kjöt af hollenskum kjötframleiðanda, að gera athuganir á um 50 þúsund tonnum af kjöti. Grunur leikur á að kjötið sem sagt er vera nautakjöt sé í raun hrossakjöt.

Biður matvælaeftirlitið fyrirtækin að taka kjötið af markaði og ganga úr skugga um hvort það sé í raun nautakjöt.

Talið er að kjötframleiðandinn Selten hafi selt hið meinta nautakjöt til yfir 370 fyrirtækja víðs vegar um Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert