Hætta við morðleik vegna dauðsfalla

Líkin fundust í sundlaug hótelsins á laugardagsmorgunn.
Líkin fundust í sundlaug hótelsins á laugardagsmorgunn. Skjáskot af Sky

Hótelrekendur í Essex í Bretlandi hafa aflýst morðgátuleik eftir að tvö lík fundust í sundlaug hótelsins.

Rannsókn á dauðsföllunum stendur yfir en lík karls og konu fundust í sundlaug Down Hall-sveitahótelsins í Hatfield Heath, Essex, á laugardagsmorgun. Til stóð að vera með morðgátuleik á hótelinu um kvöldið.

Karlinn sem lést er að sögn Sky-fréttastofunnar á fertugsaldri og konan á þrítugsaldri. Þau eru bæði sögð frá London.

Starfsfólk hótelsins reyndi lífgunartilraunir en án árangurs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert