Vill þjóðaratkvæði um veruna í ESB

Beppe Grillo, leiðtogi Fimm stjörnu bandalagsins.
Beppe Grillo, leiðtogi Fimm stjörnu bandalagsins. AFP

Beppe Grillo, sem fer fyrir Fimm stjörnu hreyfingunni sem vann kosningasigur á Ítalíu fyrr á þessu ári, hyggst beita sér fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram í landinu um veru þess í Evrópusambandinu og á evrusvæðinu.

Fram kemur á fréttavefnum Euobserver.com að mögulegt sé að knýja fram þjóðaratkvæði á Ítalíu með því að safna 500 þúsund undirskriftum því til stuðnings og ef stjórnlagadómstóll Ítalíu úrskurðar að tillagan sé í samræmi við stjórnarskrá landsins.

Flokkur Grillo er í stjórnarandstöðu en hann hefur verið mjög gagnrýninn á það hvernig tekið hefur verið á efnahagsvanda Ítalíu að kröfu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrisjóðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert