Drap sex manna fjölskyldu

Frá mótmælum gegn ofbeldi á eynni Guadeloupe í dag
Frá mótmælum gegn ofbeldi á eynni Guadeloupe í dag AFP

Maður sem er grunaður um að hafa drepið sex manna fjölskyldu, þar á meðal tvö börn, á eynni Guadeloupe í Karíbahafinu, fannst látinn í dag. Talið er að maðurinn hafi framið sjálfsvíg.

Saksóknari segir að maðurinn hafi verið eiginmaður eins fórnarlambanna og faðir barnanna tveggja, sem voru 10 og 12 ára gömul.

Lögreglan hafði skorað á morðingjann að gefa sig fram eftir að upp komst um morðin í gær. Manninum hafði verið lýst sem manni með ofbeldishneigðir, auk þess sem hann var virkur meðlimur í skotklúbbi og mikill veiðimaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert