Saatchi og Nigella skilja

Nigella Lawson
Nigella Lawson AFP

Charles Saatchi, eiginmaður Nigellu Lawson, tilkynnti í gær að hann ætli að skilja við hana. Ástæðuna segir hann þá að hún hafi ekki komið honum til varnar eftir að hann tók hana kverkataki á veitingahúsi í Lundúnum fyrir fjórum vikum.

Hann segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í Daily Mail að hann hafi greinilega valdið Nigellu vonbrigðum undanfarið ár, og að hann sé vonsvikinn yfir henni hafi verið ráðlagt að tjá sig ekki opinberlega og útskýra að hann fordæmi ofbeldi gegn konum og að hann hafi aldrei beitt hana líkamlegu ofbeldi.

Í yfirlýsingunni segir Saatchi að myndirnar hafi ekki sýnt atburðina þennan örlagaríka dag í réttu ljósi. Hann hafi ekki þrýst að hálsi hennar og að hann hafi ekki beitt hana ofbeldi. Hann óskar henni alls hins besta og segir hana yndislegustu konu í heiminum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert