Páfi talaði til ungra kaþólikka

Frans páfi talaði til ungra kaþólikka í Brasilíu í dag. Í ræðu sinni hvatti hann þá til að fara og gera allar þjóðir að lærisveinum. 

Heimsókn páfa hefur ekki verið átakalaus en átök brutust út fyrr í dag milli lögreglu og mótmælenda í Rio de Janeiro í kjölfar fundar páfa við forseta landsins. Stuðningsmenn samkynhneigðra hafa mótmælt heimsókninni. Gríðarleg öryggisgæsla er í kringum heimsókn páfans. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert