Bresku stúlkurnar brenndust illa

Lögreglan á afrísku eyjunni Zanzibar heitir nú verðlaunafé sem nemur rúmum 700 þúsund krónum fyrir upplýsingar sem leitt gætu til handtöku árásarmannanna sem skvettu sýru á tvær breskar stúlkur, 18 ára gamlar, í gær.

Stúlkurnar, þær Kirstie Trup og Katie Gee, voru á Zanzibar til að sinna sjálfboðaliðastarfi. Sýran skvettist yfir andlit þeirra, bringu og hendur. Þær eru ekki lífshættulega slasaðar en húð þeirra er brunnin. Þeim var flogið í skyndi heim aftur til Bretlands í nótt og voru lagðar inn á sjúkrahús í London í dag.

BBC hefur eftir fjölskyldum stúlknanna að þeim sé mjög brugðið og í áfalli yfir árásinni, sem hafi verið algjörlega óviðbúin og tilefnislaus. Ráðist var á stúlkurnar í hinu forna Grjótaþorpi (e. Stone Town) sem er vinsæll áfangastaður ferðamanna á Zanzibar.

Lögreglustjóri Zanzibar segir að þetta sé í fyrsta sinn sem ráðist sé á ferðamenn með þessum hætti og að lögreglan geti ekki ímyndað sér ástæðuna.

Forseti Zanzibar, Ali Mohammed Shein, fordæmdi árásina í gær og sagði hana leiða til uppnáms og ringulreiðar í samfélaginu.

„Þetta var ósiðleg árás, ekki í anda íslam,“ sagði forsetinn. „Það er mikil grimmd að kasta sýru á ungar, saklausar stúlkur.“

Skvettu sýru á breskar konur

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Anna Dóra Gunnarsdóttir: ?
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert