Samfangi Mark Bridger, mannsins sem fundinn var sekur um að hafa numið á brott og myrt hina fimm ára gömlu April Jones, hefur viðurkennt að hafa ráðist á Bridger og skorið hann aðeins nokkrum vikum eftir að hann hóf afplánun þann 30. maí síðastliðinn.
Bridger afplánar líftíðarfangelsi vegna málsins og dvelur í öryggisfangelsi í Bretlandi ásamt mörgum hættulegustu glæpamönnum landsins. Þurfti Brigder á læknisaðstoð að halda eftir árásina þann 7. júlí síðastliðinn.