Fann fjársjóð á Mont Blanc

Fjallgöngumenn sem ganga á Mont Blanc finna öðru hverju brak …
Fjallgöngumenn sem ganga á Mont Blanc finna öðru hverju brak og líkamsleifar úr indversku flugvélunum. JEAN-PIERRE CLATOT

Franskur fjallgöngumaður sem gekk á Mont Blanc fann nýverið fjársjóð í hlíðum fjallsins. Fjársjóðurinn er metinn á rúmlega 40 milljónir króna.

Fjársjóðurinn var í stálboxi, en í því voru smaragðar, roðasteinar og safírar. Boxið er talið vera úr flugvél sem fórst í fjallinu fyrir um 50 árum síðan. Fjallgöngumaðurinn skilaði fjársjóðnum til lögreglunnar.

Sylvain Merly, talsmaður frönsku lögreglunnar, segir að fjallgöngumaðurinn hafi áttað sig á að fjársjóðurinn tilheyrði einhverjum sem fórst á fjallinu. Hún segir að poki í boxinu hefði verið með áletrunina „Made in India“.

Franska lögreglan er að reyna að grafast fyrir um hver gæti hafa átt fjársjóðinn. Hún hefur haft samband við yfirvöld á Indlandi.

Samkvæmt lögum í Frakklandi er finnandi fjársjóðs lögmætur eigandi hans ef ekki tekst að hafa upp á eigandanum.

Tvær indverskar flugvélar fórust við Mont Blanc 1950 og 1966. Fjallgöngumenn sem ganga á fjallið finna öðru hverju brak og líkamsleifar úr flugvélunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert