Vildi horfa á dóttur sinni nauðgað

Stærsta ruggustól í heimi má finna í Kúbu í Crawford-sýslu …
Stærsta ruggustól í heimi má finna í Kúbu í Crawford-sýslu í Missouri. Mynd/Wikipedia

Bandarískur karlmaður er í haldi lögreglu í Crawford-sýslu í Missouri eftir að hann auglýsti eftir manni til að nauðga ellefu ára gamalli dóttur sinni. Sjálfur sagðist maðurinn vilja fylgjast með ofbeldinu. Maðurinn hélt sig vera að hitta þann sem svaraði auglýsingunni þegar hann var handtekinn.

Maðurinn, Anthony Brinkman, er 32 ára og býr í bandaríska bænum Kúbu sem er þrjú þúsund manna bær í Crawford-sýslu í Missouri-ríki. Hann setti inn auglýsingu á ótilgreint vefsvæði og óskaði eftir manni til að nauðga dóttur sinni og beita hana einnig líkamlegu ofbeldi. Brinkman tók fram í auglýsingunni að hann vildi fylgjast með því þegar stúlkan væri beitt ofbeldinu.

Auglýsingunni var svarað en Brinkman vissi ekki að þar var um rannsóknarlögreglumann að ræða. Komu þeir sér saman um dagsetningu, stað til að hittast á og tímasetningu. Ætluðu þeir sér að hittast á veitingastaðnum Cracker Barrel og mætti Brinkman með dóttur sína þangað.

Á veitingastaðnum tók lögregla á móti Brinkman og handtók hann. Leitað var á heimili hans en ekki hefur verið gefið upp hvort barnaníðsefni hafi fundist, en Brinkman viðurkenndi við skýrslutöku að það gæti verið að hann hefði slíkt efni í fórum sínum.

Brinkman á yfir höfði sér langa fangelsisvist og dóttir hans er í umsjá barnaverndaryfirvalda.

Anthony Brinkman.
Anthony Brinkman.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert