Dæmd í lífstíðarfangelsi

Rajesh Talwar og Nupur Talwar flutt í fangelsi eftir réttarhöldin …
Rajesh Talwar og Nupur Talwar flutt í fangelsi eftir réttarhöldin í gær. AFP

Indversk hjón voru í dag dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt dóttur sína og starfsmann á heimili sínu.

Rajesh og Nupur Talwar voru í gær fundin sek um að hafa myrt fjórtán ára gamla dóttur sína, Aarushi Talwar, og þjón sinn, Hemraj Banjade í maí 2008. Morðmálin hafa velkst um réttarkerfinu í fimm ár en hjónin neita sök. Þau ætla að áfrýja niðurstöðunni.

Þau Aarushi og Hemraj voru bæði skorin á háls en saksóknarar segja að hjónin hafi myrt þau eftir að hafa komið að þeim í vafasömum stellingum.

Fundin sek um morðið á dóttur sinni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert