Fjórtán ára stakk skólabróður sinn

Sky-sjónvarpsstöðin

Fimmtán ára drengur liggur nú á sjúkrahúsi í Bretlandi eftir að hann var stunginn af skólabróður sínum í dag. Lögregla var kölluð að framhaldsskóla þar í landi í morgun og var drengurinn fluttur á sjúkrahús með áverka á baki. Ekki er talið að áverkar drengsins séu lífshættulegir.

Lögregla handtók fjórtán ára dreng, sem einnig er nemandi við skólann, grunaður um að hafa veitt hinum drengnum áverkana.

Frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert