Pútín ber að ofan á hótelum

Á veggjum margra hótelherbergja í Sotsjí í Rússlandi má finna …
Á veggjum margra hótelherbergja í Sotsjí í Rússlandi má finna myndir af Pútín berum að ofan. AFP

Næstu daga munu mörg hundruð manns dvelja á hótelum í Sotsjí. Gestirnir eru ekki jafn ánægðir með herbergin því í þeim er að finna myndir af forseta Rússlands, Vladimír Pútín, berum að ofan. Á myndunum situr Pútín á hinum ýmsu spendýrum.

Myndirnar eru í öllum herbergjum sem sérstaklega voru byggð fyrir Vetrarólympíuleikana. Tracy Klugian ferðaðist alla leið frá Ohio í Bandaríkjunum ásamt konu sinni. Í samtali við The New Yorker sagði Klugian að stóra myndin af Pútín í herbergi þeirra, þar sem hann virðist sitja á birni, dálítið yfirþyrmandi.

Pútín tekur ekki mikið mark á þessum kvörtunum og líkir hótelgestum við grátandi börn. „Fólkið sem kvartar yfir því hvað er á veggjunum ætti frekar að vera þakklátt,“ sagði hann. „Að minnsta kosti  fékk það hótel með veggjum.“

Ýmsar fréttir hafa borist frá Sotsjí í tengslum við undirbúning vetrarólympíuleikanna og hafa meðal annars borist fregnir að slæmum aðbúnaði á hótelum. Frétt New Yorker er þó aðeins sett fram í gríni.

Frétt The New Yorker.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert