Hundur drap 11 mánaða barn

mbl.is

Ellefu mánaða gömul stúlka lést eftir að hundur réðst á hana í Blackburn á Bretlandseyjum. Tveir hafa verið handteknir vegna málsins, að því er fram kemur í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar.

Stúlkan var flutt á sjúkrahús en lést þar af sárum sínum. 24 ára karlmaður og tvítug kona hafa verið handtekin í tengslum við málið. Ekki hefur verið gefið upp hver tengsl parsins eru við litla barnið. Lögreglan rannsakar enn hvað gerðist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert