Búið að bjarga öllum úr námunni

Unnið að björgun námuverkamannanna í dag.
Unnið að björgun námuverkamannanna í dag. EPA

Búið er að bjarga öllum þeim sem voru fastir í ólöglegri gullnámu rétt fyrir utan Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Talið var að allt að 200 manns hefðu orðið innlyksa í námunni. 11 var bjargað af björgunarmönnum en margir til viðbótar voru í námunni en vildu helst ekki koma út þar sem fulltrúar stjórnvalda voru á svæðinu.

Mennirnir fóru ofan í námuna í gær. Grjóthrun varð og lokaði námumunnanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert