Viðurkenna Krímskaga sem sjálfstætt ríki

Íbúar borgarinnar Sevastopol á Krímskaga fögnuðu í dag þegar lýst …
Íbúar borgarinnar Sevastopol á Krímskaga fögnuðu í dag þegar lýst var yfir sjálfstæði og vilja til sameiningar við Rússland. AFP

Vladimír Pútín forseti Rússlands staðfesti í dag viðurkenningu Rússlands á   Krímskaga sem „fullvalda og sjálfstæðu ríki“.

Þingið á Krímskaga lýsti formlega yfir sjálfstæði frá Úkraínu í dag, með ósk um að sameinast Rússlandi, í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu sem þar fór fram í gær. Yfirvöld á Krímskaga fullyrða að 97% kjósenda hafi greitt atkvæði með því að slíta tengslin við Úkraínu.

Opinber ákvörðun Rússa um að viðurkenna sjálfstæði lýðveldisins Krímskaga tekur gildi samstundis, samkvæmt yfirlýsingunni sem Pútín skrifaði undir í dag. Þar segir jafnframt að ákvörðun forsetans sé tekin „í ljósi yfirlýsts vilja almennings í þjóðaratkvæðagreiðslu á Krímskaga“.

Evrópusambandið, Bandaríkin og stjórnvöld í Úkraínu hafna niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar og segja hana ólöglega.

Mótmælt var við rússneska sendiráðið í Berlín í dag.
Mótmælt var við rússneska sendiráðið í Berlín í dag. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert