529 stuðningsmenn fá dauðadóm

Dómstóll í Kaíró í Egyptalandi hefur dæmt 529 stuðningsmenn Mohammeds Morsis, fyrrverandi forseta landsins, til dauða. Morsi var steypt úr stóli forseta í júlí í fyrra. 

153 þeirra sem fengu dauðadóm eru í varðhaldi, en hinir eru á flótta. 

Átök hafa reglulega komið upp á milli mótmælenda og lögreglu í Egyptalandi síðustu vikur og mánuði og hafa stuðningsmenn Morsis reglulega látið í sér heyra. Þeir eru óánægðir með að Morsi hafi verið handtekinn og steypt af stóli.  

Mohammed Morsi var steypt af stóli í júlí í fyrra.
Mohammed Morsi var steypt af stóli í júlí í fyrra. EPA
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert