Ford vildi ekki heiðra minningu Mandela

Rob Ford, borgarstjóri Toronto í Kanada.
Rob Ford, borgarstjóri Toronto í Kanada. AFP

Hinn umdeildi Rob Ford, borgarstjóri Toronto í Kanada, vildi ekki nefna götu í borginni eftir Nelson Mandela í minningu hans. Kosið var um málið í dag og var aðeins einn sem greiddi atkvæði á móti, Ford. 

Ford rataði oftar en ekki í fjölmiðla á síðasta ári vegna drykkju og krakkneyslu, hefur ekki jafn mikil völd og fyrir ári síðan.

Ford fór síðar fram á að kosningin yrði endurtekin og sagðist hafa gert mistök. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert