Fjölskyldan komin til Ástralíu

Vilhjálmur prins, Katrín hertogaynja og Georg prins sonur þeirra eru komin til Sydney í Ástralíu. Þaðan komu þau frá Nýja-Sjálandi þar sem opinber heimsókn þeirra hófst. Tony Abbott, forsætisráðherra landsins, tók á móti þeim á Kingsford Smith-flugvellinum.

Mörg þúsund manns söfnuðust saman við óperuhúsið fræga, en þar fór fram móttaka til heiðurs konungsfjölskyldunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert