Chelsea Clinton ólétt

Chelsea Clinton á ráðstefnunni No Ceilings: The Full Participation í …
Chelsea Clinton á ráðstefnunni No Ceilings: The Full Participation í dag. Þar tilkynnti hún að hún ætti von á barni. AFP

Chelsea Clinton, dóttir Bills og Hillary Clinton, er ólétt. Þetta verður fyrsta barn hennar og eiginmannsins, Marc.

Í frétt NBC-sjónvarpsstöðvarinnar segir að Chelsea hafi tilkynnt óléttuna á fundi Clintonsamtakanna í kvöld. Fundurinn bar yfirskriftina No Ceilings: The Full Participation. Stóðu mæðgurnar, Hillary og Chelsea, saman að viðburðinum.

„Það er eitt sem ég þarf að bæta við, örsnöggt,“ sagði Chelsea er fundinum var að ljúka.

„Ég vil bara þakka ykkur öllum fyrir að veita mér innblástur, mér og móður minni sérstaklega. Við Marc erum mjög spennt yfir því að vera að fara að eignast okkar fyrsta barn síðar á þessu ári.“

Svo bætti hún við: „Og mér líður vissulega betur, hvort sem þetta verður stúlka eða drengur, að hún eða hann mun alast upp í heimi með svo mörgum sterkum kvenkyns leiðtogum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert