Skutu á úkraínska herflugvél

Uppreisnarmenn í austurhluta Úkraínu.
Uppreisnarmenn í austurhluta Úkraínu. AFP

Eftirlitsflugvél úkraínska hersins varð fyrir skotum í dag er hún flaug yfir bæinn Slavyansk í austurhluta landsins. Bærinn er á valdi aðskilnaðarsinna sem vilja sameinast Rússlandi.

Vélin er af gerðinni Antonov An-30. Flugstjóranum tókst að lenda vélinni heilu og höldnu. Engan sakaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert