Drap eiginmanninn og eldaði líffærin

Frá Frakklandi.
Frá Frakklandi.

Rúmlega sjötug frönsk kona mun gangast undir geðrannsókn eftir að hafa drepið eiginmann sinn og eldað hjarta hans, nef og kynfæri. Konan var handtekinn 22. maí síðastliðinn í bænum Longwy í Frakklandi.

Henni hefur verið lýst sem kvenkyns Hannibal Lecter, sögupersónu í The Silence of the Lambs.

Konan drap eiginmann sinn með mortéli sem hún notaði til að merja krydd. Því næst eldaði hún hjartað, nefið og kynfærin í potti en ekki er vitað hvort hún borðaði líffærin.

Lögfræðingur konunnar segir hana þjást af ofskynjunum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert