Dönsuðu sig frá sorginni

Það voru ekki nærri því allir Brasilíumenn sem settu upp stút eftir tap landsliðsins í fótbolta í undankeppni HM í gær. Langt frá því. Margir ákváðu að dansa og syngja í sig gleði á ný. Og ef það er eitthvað sem Brasilíumenn kunna þá er það að dansa.

Fjölmenni kom saman í Alzirao-stræti í Rio de Janeiro og dansaði af öllum lífs og sálarkröftum. Tapið stóra, 7-1 gegn Þýskalandi var fljótt að gleymast. Að minnsta kosti um stund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert