Myrti sex í Houston

Maður skaut fjögur börn  ásamt karli og konu á fertugsaldri til bana í úthverfi Houston í Texas í gærkvöldi.  Fimmtán ára gömul stúlka er alvarlega slösuð eftir árásina. Morðinginn er í haldi lögreglu en hann gafst upp eftir þriggja tíma umsátur lögreglu.

Samkvæmt AP fréttastofunni hóf maðurinn skothríðina um sexleytið að staðartíma í gærkvöldi. Það var 15 ára gamla stúlkan sem náði að hringja á neyðarlínuna og láta vita. 

Samkvæmt upplýsingum AP frá lögreglunni eru fórnarlömbin tveir drengir fjögurra ára og 13 ára, tvær stúlkur, 7 og 9 ára, 39 ára gamall karl og 33 ára gömul kona. Stúlkan sem lifði af árásina er mjög alvarlega slösuð.

Mynd úr safni
Mynd úr safni AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert