Íbúar Suður-Súdan gerðu sér glaðan dag í gær, á þriggja ára sjálfstæðisafmæli þessa yngsta þjóðríkis heims. Þrátt fyrir olíuauðævi blasir hungursneyð við milljónum íbúa landsins, vegna stríðsátaka sem hafa lamað samfélagið síðustu 7 mánuði.
Salva Kiir forseti Suður-Súdan biðlaði til uppreisnarmanna um að leggja niður vopnin og fara heim til sín, í ræðu á þjóðhátíðardaginn. Í sömu ræðu sakaði hann helsta keppunaut sinn og fyrrverandi varaforsetann Riek Machar um að standa baki nýjum árásum í borgarastríðinu.
„Ef við stöðvum ekki stríðið mun okkar eigið fólk halda áfram að deyja,“ sagði forsetinn og sagðist enn tilbúinn í samningaviðræður. Hann hefur hinsvegar hafnað kröfum uppreisnarmanna um að senda úgandskar hersveitir burt úr landinu. Sérfræðingar segja að beggja megin átaklínunnar telji menn enn að hægt sé að sigra stríðið með valdi.
Á götum höfuðborgarinnar Juba voru í gær strengdir borðar og fánar með slagorðinu „Ein þjóð, eitt ríki“ og í ræðum var því fagnað að Suður-Súdan hefði slitið sig frá ofríki ríkisstjórnar Súdan.