13 látnir í Casablanca

Þrettán eru látnir eftir að þrjú hús hrundu í stærstu borg Marokkó, Casablaca, á föstudagskvöldið. Fimm lík fundust í rústunum í dag.

Meðal þeirra eru tvö börn og leikkonan Amal Maarouf og móðir hennar. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar þar sem enn er einhverra saknað. Sextíu slösuðust er húsin hrundu en ekki er vitað hvað olli slysinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert