Georg gengur eins og herforingi

Vil­hjálm­ur Bretaprins og Katrín her­togaynja sendu frá sér ljósmynd af næstum eins árs syni sínum, Georg prins, fyrr í dag. Á myndinni má sjá Georg litla ganga eins og hann hafi ekki gert annað um ævina. Er því einnig spáð að smekkbuxur muni seljast eins og heitar lummur í Bretlandi eftir helgi.

Georg prins verður eins árs á þriðjudag en þrátt fyrir ungan aldur leggur hann línurnar þegar kemur að klæðnaði ungbarna. Á myndinni sem send var út í dag má sjá Georg í bláum smekkbuxum og verður því eflaust rifist um buxur sem þær í breskum verslunum, og víðar, þegar þær verða opnaðar á mánudag.

„Prinsinn er mjög fjörugur, ánægður með sig og fullur sjálfstrausts,“ segir ljósmyndarinn John Stillwell en hann tók myndina af Georg. „Og hverjum líkist hann? Ég myndi segja að hann líktist föður sínum, Vilhjálmi.“

Afmælisveislan verður haldin í Kensington-höll og er aðeins nánustu ættingjum og vinum boðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert