Fjögurra ára gamall drengur sem fannst liggjandi úti á miðri götu í borginni Tampa í Flórída-ríki í Bandaríkjunum er látinn. Lögreglan greindi frá þessu í dag og sagði að rannsókn á málinu væri hafin.
Reuters greinir frá þessu.
Samkvæmt sjónarvotti var hinum fjögurra ára gamla Marterrance Albury kastað úr bifreið á ferð á sunnudagskvöldið. Drengurinn slasaðist alvarlega og var fluttur á spítala þar sem hann síðar lét lífið.
Lögreglan í Tampa leitar nú grænnar Ford bifreiðar sem talin er tengjast málinu en enginn hefur verið handtekinn.