Farþegaflugvél brotlenti í Taívan

Flugvél af gerðinni ATR 72.
Flugvél af gerðinni ATR 72. Ljósmynd/Wikipedia

Fleiri en fimmtíu manns um borð í farþegaflugvél TransAsia létust þegar hún brotlenti á Penghu-eyjum í Taívan fyrr í dag. Afar slæmt veður var á svæðinu og er talið að flugstjóri vélarinnar hafi ætlað að reyna nauðlendingu. Hún hafi ekki tekist betur en svo að vélin skall harkalega til jarðar og í henni kviknaði.

Farþegaflugvélin er af gerðinni ATR 72 og voru 58 farþegar um borð, þar af fjögur börn. Hún var á leið frá Gaoxiong til Penghueyja. 

Enn eru upplýsingar um slysið af skornum skammti en talið er að 51 hafi látið lífið og sjö séu alvarlega slasaðir eftir brotlendinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert