Misnotaði stúlkur í nágrannahúsinu

Frá Bergen í Noregi
Frá Bergen í Noregi Mynd/Wikipedia

Norðmaður á sextugsaldri var handtekinn í Bergen fyrr í þessum mánuði, grunaður um að hafa misnotað fjórar stúlkur sem allar voru undir tíu ára aldri, í íbúð nágranna síns. Maðurinn var með lykla að íbúðinni vegna þess að hann var að passa hund nágranna sinna, sem voru staddir í sólarlandafríi.

Þegar stúlkurnar komu heim frá íbúðinni töluðu þær við foreldra sína, sem höfðu strax samband við lögregluna. Var maðurinn handtekinn í dag og játaði þá að hafa misnotað tvær stúlknanna. Maðurinn er sagður vera alkóhólisti, og á áður að hafa glímt við eiturlyfjafíkn. Lögreglan segist samt aldrei áður hafa haft afskipti af manninum og að hann sé með hreina sakaskrá. Nú rannsakar hún hins vegar hvort hann gæti tengst öðrum kynferðisbrotum sem framin hafa verið í borginni. 

Þegar lögreglan rannsakaði íbúð mannsins, fannst meðal annars barnaklámfengt efni í tölvu hans. 

Sjá frétt Verdens Gang

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert