Enginn lifði slysið af

Frá slysstað í Malí.
Frá slysstað í Malí. Af Twitter BBC

Enginn komst lífs af er farþegavél Air Algerie hrapaði í Malí í gær. Um borð voru 116 manns, 110 farþegar og sex manna áhöfn. Þeir sem fórust voru af 54 þjóðernum, flestir Frakkar.

Forseti Frakklands, François Holland, sagði í dag að búið væri að finna annan flugrita vélarinnar en franskir hermenn eru nú komnir að flakinu. Vélin hrapaði skammt frá landamærunum að Búrkína Faso.

Samband rofnaði við vélina um 50 mínútum eftir flugtak. Flugmenn höfðu verið í samskiptum við flugumferðarstjórn vegna slæms veðurs yfir Sahara-eyðimörkinni. Vélin breytti um stefnu vegna veðursins. Franski innanríkisráðherrann sagði í dag að líklega hafi vélin hrapað vegna veðurs.

Vélin var á leið frá Búrkína Faso til Alsír.

Frétt BBC.

Bilal Deheini frá Líbanon var meðal þeirra sem fórust með …
Bilal Deheini frá Líbanon var meðal þeirra sem fórust með vélinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert