Hjólahetja varð fyrir bíl í Rússlandi

Ron McGerity setti þessa mynd inn á Facebook-síðu sína á …
Ron McGerity setti þessa mynd inn á Facebook-síðu sína á þriðjudaginn. Hann var þá nýkominn til Moskvu. Mynd/Facebook

Bandaríski hjólreiðamaðurinn Ron McGerity lést í dag þegar ölvaður ökumaður keyrði á hann á meðan McGerity var á hjólaferð um Rússland. Ökumaðurinn flúði vettvang.

McGerity, sem var 61 árs gamall, var nýlega kominn til Rússlands þegar slysið átti sér stað, en hann ætlaði að hjóla hringferð um alla þá gömlu smábæi sem umkringja Moskvu.

McGerity hefur frá árinu 1995 hjólað um heiminn til þess að safna fé fyrir ýmis góðgerðarmálefni en hann sagðist sjálfur hjóla fyrir friði í heiminum.

Hann hefur hjólað yfir rúmlega 50 lönd á þessum 19 árum, til dæmis Kanada, Egyptaland, Ísrael, Frakkland, Japan og Noreg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert