Slapp ótrúlega vel eftir ákeyrslu

Tólf ára piltur bæði handleggs- og fótbrotnaði þegar ekið var á hann í maí síðastliðnum. Á myndskeiði sem náðist af atburðinum sést hvernig stórum skutbíl var ekið á miklum hraða, upp á gangstétt og á piltinn þar sem hann sat á reiðhjóli sínu. Með ólíkindum þykir að pilturinn hafi ekki slasast meira.

Pilturinn, Abraham al Saidi, var ásamt tveimur öðrum að hjóla eftir gangstétt í New York í Bandaríkjunum. Samkvæmt því sem segir í frétt Sky fréttastofunnar liggur ekki fyrir hvers vegna bifreiðinni var ekið upp á gangstéttina en það er til rannsóknar. Fjölskylda piltsins hefur einnig ákveðið að fara í mál við borgina vegna þess hversu hættulegt er að fara um svæðið.

Hér að neðan má sjá myndskeiðið:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert